The Psycho..... logy student ;)
08.07.2007 00:19:16 / Sóldís

Nýtt blogg

Jæja gott fólk!

Ég er komin með nýtt blogg!!

Slóðin er: soldislilja.bloggar.is

Tékkið á þessu!


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 00:32:32 / Sóldís

Gæsahúð!!

Ég hef aldrei fengið aðra eins gæsahúð við að horfa á tónlistarmyndband.....

Tékkið á þessu:

http://artists.letssingit.com/pink/dear-mr-president/zmt1lcz/video


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 19:08:08 / Sóldís

Stinga af ??

She said I think I'll going to Boston
I think I'll start a new life
I think I'll start it over
Where no one knows my name
I'll get out of California
I'm tired of the weather
I think I'll get a lover
I'll fly them out to Spain

Mér finnst þetta lag svo geggjað flott! Það heitir Boston og er með hljómsveit sem heitir Augustana - það er búið að vera doltið mikið í spilun á fm. Allavega, mér finnst þetta mjög flott og mér hefur svo oft liðið svona! Bara langað að stinga af og byrja uppá nýtt einhvers staðar annars staðar...

Ég er í fríi í dag, var líka í fríi í gær og verð í fríi á morgun :D Af því að það er búið að vera svo gott veður undanfarið þá fannst mér alveg típískt að það væri komið leiðinlegt veður loks þegar ég færi í frí en nei! 8) Þessi líka bara glimrandi sól! Ég búin að ná mér í hellings tan og alles ;) Í gær fór ég í sund með Ásu og svo sátum við heillengi úti á svölum hjá henni og svo í dag fór ég ein í sund og sólaði mig í einhverja 2 tíma. Bikinífarið sem ég fékk úti á Portúgal var farið að dvína en nú er það sko komið aftur :haha: Ekki aaaalveg jafn mikið og eftir Portúgal en... I'm getting there :D Tíhí.. gaman að vera brúnn :D

Í kvöld erum við Anna Lísa að fara að kíkja til Lydíu og Halla og fá að pota aðeins í litla prinsinn þeirra sem kom í heiminn 20. júní :) Ég hlakka ekkert smá til! Það er svo gaman að þessum litlu krílum :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 23:35:19 / Sóldís

Er að fara að flytja að heiman...

... í 2 vikur í ágúst :haha: Híhí... Benni bróðir, Rakel og Linda María eru að fara til Spánar í 2 vikur og þau báðu mig um að passa íbúðina þeirra á meðan :haha: Ég er ekkert smá spennt fyrir þessu!!

Í gær var saltfiskur í matinn í vinnunni. Kallarnir sögðu að hann væri alltof saltur (brimsaltur) og algjörlega óætur. Haha.. og við Jara fengum nokkur mjög skondin skilaboð frá köllunum. Þeir setja matarbakkana sína sko í svona grind þegar þeir eru búnir að borða og svo rúllum við henni inní uppvask og tæmum hana.... á einum bakkanum var búið að hella úr heilum saltstauk á diskinn, á einum var búið að stappa fisknum og kartöflunum og móta svona hauskúpu úr stöppunni og á einum bakkanum var hreinlega miði sem á stóð "takk fyrir saltið". Það er sko óhætt að segja að kallarnir í álverinu séu með húmor ;) Okkur fannst þetta allavega mjög skondið!


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 22:29:50 / Sóldís

sumar sumar sumar

Jæja, sælt veri fólkið!

Vinnudagurinn í dag var held ég sá besti síðan ég byrjaði í álverinu!! :D Af því að það er búið að vera svo geggjað veður var ákveðið að hafa útigrill í staðinn fyrir svona hefðbundinn mat inni í mötuneytinu. Það voru sett upp grill og svona fyrir framan mötuneytið - settir upp 4 stórir hátalarar og spiluð tónlist. Svo sátu allir bara í grasinu og borðuð góða grillmatinn :D Mitt hlutverk var að ganga frá leirtauinu og telja það - s.s. telja hvað margri diskar fóru í gegnum uppþvottavélina. Ég veit, þetta hljómar eins og eitthvað þrælahlutverk en... þetta var mjög rólegt og easy eitthvað :) Fyrst til að byrja með stóðum við stelpurnar bara úti á tröppum og fylgdumst með fólkinu sem var að koma og fá sér að borða ... þ.e. þangað til það kom að okkur að vinna vinnuna okkar ;) Svo þegar allir voru búnir að borða settumst við niður - úff hvað þetta var gott!!! *namminamm* Já, og af því að matsalurinn var ekkert notaður var ekki mikil vinna fyrir okkur sem áttum að sjá um að þrífa hann og ganga frá svo að það var ekki mikil vinna en mikið chill :lol: Very nice!

Próftaflan fyrir sumarið kom í dag... ég er að fara í próf 15. ágúst! :S Saga sálfræðinnar... jibbí! Eða þannig.... þetta þýðir að það eru ca. 6 vikur í prófið og ég þarf að fara að drattast til að byrja að læra! úff! ég er nú ekki beint í fílingnum fyrir það :( En svona er þetta víst....

Ég var minnt á það í dag að ég er að fara í brúðkaup 11. ágúst :D Kristín Lilja sem var með mér í fimleikunum er að fara að giftast honum Hadda sínum. Við fimleikagellurnar ætlum að gæsa hana og svona :) Ég hlakka ekkert smá til! Verst að þetta kemur ekki á góðum tíma :S 4 dögum fyrir prófið mitt.. en, that's life!

Í gær fékk ég vinnuplanið fyrir sumarið. Ég verð að vinna á vöktum til 11. júlí en eftir það fer ég að vinna dagvaktir - 8-4 alla virka daga og frí um helgar. Mér líst bæði mjög vel á það og líka ekkert allt of vel. Mér líst vel á það vegna þess að þá er ég alltaf búin kl. 4 í vinnunni og alltaf í fríi um helgar :D En.. mér líst ekki svo vel á það vegna þess að ég þarf basically að læra allt upp á nýtt því að þær sem vinna í dagvinnu eru ekki að gera það sama og þær sem eru að vinna á vöktum. Það er frekar pirrandi að vera búinn að læra eitthvað nýtt og þegar maður er búinn að ná góðum tökum á því að þurfa að fara að læra eitthvað nýtt.....

Úff! Ég er að horfa á Date Movie - þetta er nú meira ruglið!! Alltaf sama stuðið hjá mér ;) En já, vinna kl. 8 í fyrramálið svo að ég fer bara snemma að sofa í staðinn fyrir að láta mér leiðast ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2007 18:17:48 / Sóldís

Nammi nammi!

Nammi!! Jarðaber eru GÓÐ!! Ég held ég sé barasta að borða bestu jarðaber sem ég hef smakkað :D Þau eru nákvæmlega jafn góð og þau litu út fyrir að vera í búðinni. Einu sinni keypti ég nefnilega jarðaber í 10-11 sem voru ekkert smá girnileg en svo voru þau bara hrikalega vond! En.. ekki þetta skiptið.. nammi nammi! :D

Mér finnst ekki gaman að vera ein heima og leiðast :| Allt í lagi að vera ein heima en.. ekki þegar maður hefur ekkert að gera og engan að hanga með :S Ég er að vona að það sé eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu .. annars tek ég mér bara spólu eða eitthvað..

Ég er að sjá sæta stráka úti um allt þessa dagana! Vildi að ég kynni/þyrði að labba bara upp að þeim og spjalla við þá ... eitthvað sem ég þarf að læra. En hvað eru þessir gaurar búnir að vera? Koma þeir bara út á sumrin eða...?? Ég þarf greinilega að fara á djammið á næstunni! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 23:10:22 / Sóldís

No more pás!

Ég er officially hætt í bloggpásu ;)

Ég var að koma úr bíó. Kíkti á Ocean's 13 - fín mynd! Og mér er sama hvað hver segir, Brad Pitt ER hot! Mér er alveg sama þó að hann sé næstum jafngamall og mamma mín! - Ég hef alltaf sagt að mér finnist "ógeðslegt" þegar stelpur á mínum aldri eru að deita gaura sem eru 20 árum eldri... well, ef við erum að ræða Brad Pitt þá erum við að tala um eitthvað allt annað :P

Það var ekkert smá næs á Portúgal! Myndirnar þarna fyrir neðan virka einhvern veginn too good to be true en svona var þetta. Ég sá þetta allt með berum augum. Þarf að setja inn myndir við gott tækifæri... þessi klettaströnd var BARA æði! Fyrir utan það hvað ég brann illilega á rassgatinu við að liggja þar. Þoli ekki strendur þar sem maður brennur! :P Á myndir af brenndu rassgatinu á mér (don't ask) en ég held ég sleppi því bara að setja þær inn. Ég er ekki að grínast! Ég hef aldrei brunnið svona illilega í sól!!! Um kvöldið sveið mig í rassinn og aftan á fótleggjunum!! Mér sveið svona eins og manni svíður í puttann þegar maður brennur sig. Ég var ON FIRE!! - næstum eins og Brad Pitt ;) hehe... En já, Portúgal var nú samt ekki bara einn stór rassbruni! Þetta var bara mjög kærkomin ferð... chillað helling, farið út að borða á hverju kvöldi, legið í sólbaði, farið í vatnsrennibrautagarð, á ströndina, verslað smá, farið í sædýragarð (sem var reyndar ekkert spes) og svona sniðugt dót :) Var mjög spennt að koma heim en um leið og ég var komin heim langaði mig út aftur!

Ég og flugvélakjáninn (Jóel) erum hætt saman :( Þetta var ekki alveg að ganga hjá okkur þó ég hefði SVO viljað að það hefði gert það. EN ég ætla ekkert að fara nánar út í það hér... Þeir sem eru með mig inná msn geta rætt málin þar ef þeir eru að springa úr forvitni.. Vildi bara svona láta fólk vita.

Vinnan í álverinu er bara fín! Ég er að vinna með mjög hressri skvísu :D Við erum s.s. 2 sem eru alltaf saman á vakt.. svo erum við nottla líka að vinna með fleirum yfir daginn en eins og þegar við erum að vinna á kvöldin erum við bara 2. Hún er algjör gullmoli þessi stelpa - við getum hlegið og bullað eins og ég veit ekki hvað og svo er bara mjög næs að spjalla við hana. Það skiptir öllu máli að vinna með skemmtilegu fólki og ég er mjög ánægð að ég er að vinna með henni! :) Úff hvað ég hlakka til að fá útborgað!!! 8 dagar í það!

There is a chance that the shopaholic himself might be going to Minneapolis this fall ... tíhí!


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 12:38:43 / Sóldís

Pása

Finnst leiðinlegt að valda ykkur vonbrigðum ... ef einhver les þá bloggið mitt ennþá ... en ég er officially komin í bloggpásu um óákveðinn tíma...

Hafið það gott í sumar!


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 16:59:38 / Sóldís

Á MORGUN!!

 Jæja, jæja, jæja!! :D Portúgal bara Á MORGUN!!! :haha: :haha:

Og þetta er m.a. það sem bíður mín:

Gott veður:

http://www.weather.com/outlook/travel/businesstraveler/tenday/POXX0013?from=36hr_topnav_business

Vatnsrennibrautir:

Strendur:

 

Hótel og sundlaugagarður:

:haha: :haha: :haha:

Ég er svona nokkurn veginn búin að finna allt til sem ég ætla að taka með mér :) Hlýrabolir, stutt pils, stuttbuxur (VC náttbuxurnar mínar), stuttermabolir og 2 bikiní - svo eitthvað sé nefnt ;) Núna bíð ég bara spennt eftir morgundeginum!!! Við fljúgum út kl. 16:30 svo að við verðum komin uppá völl um 2 leitið... :haha: Ég er ekkert smá spennt!!! Tíhí.. :D

Þið hafið það vonandi bara gott á íslandinu á meðan ég er í útlandinu ;)

Bæjó spæjó!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 23:08:42 / Sóldís

Sumar, sumar, sumarogsól :D

Þá er bloggið komið í sumarbúninginn, alveg eins og ég :D Hehe... eða eitthvað svolleis :P

jámm.. maður er byrjaður að vinna bara alveg hreint á fullu. Byrjaði síðasta föstudag. Ég get nú ekki sagt að þetta sé skemmtilegasta vinna í heimi en ég svosem bjóst ekki við því að hún myndi verða það. Ég er samt að vinna með ágætiskellingum og svo á ég eftir að fá ágætis summu inná reikninginn minn næstu mánaðarmót þannig að þetta er í lagi ;) Ég er jú að þessu fyrir peningana ;)

Ég er svo bara að vinna á morgun...svo er ég í vaktafríi á sunnudag og mánudag og svo fer ég til Portúgal á þriðjudaginn!!! Eftir 4 daga!!! Bara svona marga: I I I I  - 1, 2, 3, 4 ... AAAAAAAAA!! Ég hlakka ekkert smá til!! Það er búið að vera rigning á Portúgal undanfarnar vikur og við erum búin að vera frekar sressuð yfir því að við fáum kannski ekki gott veður en..... ég var að skoða þetta í dag og það bara lítur allt út fyrir að það verði alveg hreint GLAMPANDI sól og sniðugheit :D jeij jeij jeij!!

Það er ekkert smá næs að vera ekki í skóla! Bara geta eytt frítímanum í eitthvað dúllerí.. fara í sund, ræktina, kringluna :haha:, hangsa með kæró og svo ýmislegt :D tíhí.. Reyndar eitt sumarpróf í ágúst en.. iss! pæli ekki í því alveg strax ;)

úff! ég er ekkert smá sybbin!! Er eiginlega bara að pæla í að fara að lúlla mér.. þarf að leggja af stað í vinnuna kl. hálf 8 í fyrramálið..


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 00:01:03 / Sóldís

Já, ég er á lífi!

Blogga já...

Það er svo bjánalegt. Þegar ég í raun hef ekki tíma til að vera í tölvunni - þegar það er nóg að gera í skólanum og svona - þá er ég rosa dugleg að blogga. En... þegar ég er í fríi og hef í raun ekkert að gera þá bara nenni ég ekki að standa í þessu! Hef heyrt að það eru fleiri en ég sem verða eirðarlausir þegar lærdómurinn á að vera í forgangi.. hehe, kannski er ég ekkert svo skrýtin ;)

Ég byrja í sumarvinnunni minni kl. 8 á föstudagsmorguninn. Veit ekki alveg hvort ég hlakki til, verður samt ágætt að hafa eitthvað að gera.. komast í rútínu og fá svo útborgað!! JÁ TAKK!! hef sko meira en nóg við peninga að gera ;)

Síðast þegar ég minntist á Portúgal þá voru 35 dagar í það en núna eru bara 13! :D :D Jeij jeij jeij!! Skal ekki tala meira um það ;)

Prófin gengu: nokkuð vel, illa og ágætlega - í þessari röð...

aidos!


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 14:47:23 / Sóldís

07.07.07 - hinn fullkomni brúðkaupsdagur??

05.05.07 ... fyrir 2 árum var dagsetningin 5. maí svaka kúl - 05.05.05 hehe.. Eða það fannst sumum. Nú er það búið að vera í blöðunum að 7. júlí í ár verði bara vinsælasti brúðkaupsdagurinn ever! Eða allavega miðað við undanfarin ár. Lítur jú doltið flott út; 07.07.07... En ég verð að segja að mér finnst frekar halló að velja sér brúðkaupsdag eftir því hvernig dagsetningin lítur út á blaði :S En.. kannski er ég bara skrýtin. Mér fannst samt doltið skondin ein tilgáta sem var sett fram í blaðinu fyrir ástæðunni fyrir því að fólk veldi þennan dag... hehe... þá væri auðveldara fyrir karlmenn að muna eftir brúðkaupsafmælum!! haha!! :lol: Kannski doltið til í því.... Maður spyr sig! ;)

 MJÖG djúpar pælingar í gangi hérna yfir próflestrinum sjáiði til ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 12:22:01 / Sóldís

Próf - partý - próf

Fyrsta prófið búið.. jeij jeij jeij! Hehe.. já, það gekk bara alveg þokkalega. Hefði alveg viljað fá aðeins betri ritgerðarefni en... þetta reddast :) Ég er ekki í neinni fallhættu eða neitt svolleis.. ja, nema ég hafi verið að misskilja eitthvað alveg hrapalega!

Það var árshátíð/staffahittingur á Nings á mánudagskvöldið :) Það var sko ekkert smá stuð!!! ég var að detta í það í fyrsta skipti í LAAAANGAN tíma.. hehe... Var pínu skrautleg en það var sko BARA gaman! Það voru þarna alveg þessi líka snilldar skemmtiatriði. Jökull gerði mjög góða hluti þegar hann tók Nínu (lagið) og bjó til nýjan texta við það - Vaktstjóralagið. Ég man bara ekki hvenær ég hló svona ógeðslega mikið síðast! Mér var orðið illt! Þetta var bara mesta snilld! Held samt að enginn af þeim sem var að vinna á hinum stöðunum hafi fattað brandarana. þetta voru nefnilega allir staðirnir saman á árshátíð og svo kom hver og einn staður með skemmtiatriði.. okkar voru langlang lang flottust! híhí... Jökull með vaktstjóralagið, Helga Dóra og Erna gerðu alveg snilldar vídjó þar sem þær gerðu grín að hinum og þessum á nings :) hehe... og svo síðast en ALLS EKKI síst.. Hönkasjóið hennar Söndru..hahaha! Það var bara mesta snilld! Hún fékk nokkra bílstjóra til að hafa svona .. já.. hönkasjó! :lol: Haha! Það má nú alveg deila um það hversu miklir hönkar þeir voru og hversu eggjandi þetta var allt saman en... þetta var allavega drepfyndið! That's for sure! Svo var bara dansað og fíblast frameftir nóttu, farið á smá trúnó og svo bara brunað niðrí bæ :) Má nú deila um hversu mikið stuð var í bænum en... við Katrín vorum allavega í stuði ;) Hehe.... já, þetta var MJÖG GAMAN!

  

Þriðjudagurinn fór svo reyndar bara í það að sofa úr sér djammið.. hehe... Svaf eiginlega til hálf 7 :$ Vaknaði nú eitthvað þarna á milli og fékk mér að borða og horfði smá á Opruh en drattaðist endanlega á fætur kl. hálf 7.. hehe.. Svo bara eyddi ég kvöldinu í chilli með flugvélakjánanum honum Jóel :D Híhí..

Í gær gerði ég svo heiðarlega tilraun til að byrja að læra undir næsta próf - Persónuleikasálfræði sem verður kl. 9:00 næsta mánudag. Komst að því þegar ég var að byrja að kíkja yfir efnið að ég er ekki í góðu málum! :( Á eftir að lesa alveg helvíti mikið!! Svo við förum nú ekkert út í það að tileinka sér efnið.... :( Ég er bara rétt að vona að þetta reddist allt saman!! Þarf að fá 3,9 á lokaprófinu til að ná kúrsinum svo að það er bara stefnan!! Auðvitað stefni ég alveg á hærra en... ef ég næ verð ég ánægð! - einn af þeim kúrsum :S Já, heiðarlega tilraunin til að læra tókst s.s. ekki alveg  nógu vel þar sem ég endaði uppí sófa að horfa á Extreme Makeover og Britain's next top model í gærkvöldi :$

Svo bara núna í dag er ég staðráðin í því að reyna bara mitt besta... lesa bara eins og ég get og lesa vel tímaglósurnar sem ég er búin að vera dugleg að gera í vetur.. fara í efni úr umræðutímum og svona... bara eins gott að þetta reddist! Mig vantar námslánin mín!!!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 20:13:08 / Sóldís

læra læra læra

Læra læra læra læra... úff! Er ekki aaaaalveg að nenna þessu! Fyrsta prófið á morgun og ég held að ég sé bara í ágætis málum. Alltaf síðasta daginn fyrir próf verð ég eitthvað svo eirðarlaus.. á erfitt með að einbeita mér að námsefninu og einhvern veginn bara nenni alls ekki að læra! :S Mig langar bara svo að vera að gera eitthvað allt annað en að læra fyrir próf!! 

Ég er bara búin að vera heima að læra undanfarna daga... mun svona notalegra heldur en að vera úti í skóla + ég spara hellings pening í nesti! :D Það eru búin að vera svo mikil læti á efri hæðinni að það er alveg rosalegt. Það býr gamalt fólk þar svo að ég er ekki alveg að fatta hvað það gæti verið sem er í gangi þarna... ég er eiginlega bara búin að vera að bíða eftir því að miðakallinn alræmdi hrynji í gegnum loftið og í fangið á mér! Það hefur nú sem betur fer ekki gerst ennþá.... hjúkk!!

   

híhí.. hef svo sem ekkert mikið meira að segja..


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 11:44:09 / Sóldís

Beauty is pain!

Ég fékk það staðfest í gær að orðatiltækið "Beauty is pain" hefur fyllilega rétt á sér!!

 

... ég fór í vax í fyrsta skipti ...


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24